Í páskavikunni var saumuð síð stelpuhettupeysa/kjóll sem passar á 8-10 ára netta stelpu. Þar sem ég á enga stelpu þá þarf ég að hugsa þessa sem gjöf...hmmmm....einhverjar hugmyndir?
Ég lauk einnig við aðra ermina á peysu fyrir litlu systur - en eiginlega er það mamma sem er að prjóna peysuna. Ég kom bara til hjálpar með því að gera ermi.
3 comments:
hmmm stelpan mín er 8 ára ;-)
Sesselja alveg að verða 8 ára ;-D (ok ekki fyrr en í haust en tíminn er fljótur að líða!)
Jóhanna mín að sjálfsögðu má Ólöf eiga kjólapeysuna :) - kem með hana þegar Tinni er mættur (verð sko að fá að skoða gripinn)
Helga mín - mér á pottþétt eftir að detta eitthvað í hug fyrir afmæli frænkuprinsessunnar minnar :).
Post a Comment