Fyrir rúmum fjórum vikum síðan ákvað ég að gera einfalda tilraun. Kannski flókna fyrir suma - en einfalda fyrir mig. Tilraunin fólst í því að taka glúten úr matnum mínum. Ekkert flókið - bara út með glúten punktur basta. Það er til kex, hveiti, brauð, pasta, snakk og nammi sem er ekki með glúteni. Það er meira að segja til bjór með engu glúteni. Þannig að þetta er í raun ekki mikið mál. Tilraunin var gerð að vel athuguðu máli þar sem ég var búin að lesa og lesa og lesa og ..... lesa allskonar greinar og rannsóknir. Algengasta merki um glútenóþol er niðurgangur....EN það er ekki EINA merkið um glútenóþol. Og þá er það sagt. Þeir sem eru með glútenóþol fá alveg jafn mikinn útblásinn/uppþembdan maga af speltbrauði eins og hveitibrauði - jebbs.
Glútenfría heimabakaða brauðið mitt
sem var að koma úr ofninum.
BakeFri er eina glútenlausa bakaríið í Osló
- en hei - það er glútenlaust og gott :D
Niðurstöður 4. vikna tilraunar:
útþaninn magi = hætt
tregur magi = hætt
"unglingabólur" = horfnar
roði í andliti = minnkað
verkir í fingrum á morgnanna = veruleg minnkun (er enn að dást að þessu á morgnanna)
verkir í fingrum seinnipart og á kvöldin = veruleg minnkun
verkir í liðum = veruleg minnkun
verkir í vöðvum eftir gönguferð/skokk = hætt
þreyta = veruleg minnkun
upptaka járns = frábær
kílóafjöldi = sá sami
hæð í sm = sá sami
Heildarniðurstaða:
glúten er ekki fyrir mig
- og vinir/fjölskylda ekki hafa áhyggjur, ég
hef bara með mér nesti í poka ef ég held að ég komi til með að
svelta í afmælum/matarboðum hehe
Eftir 6 daga er ég að fara í 8 daga ferðalag með Frú Galin. Fyrst verð ég ein í heilan dag í Mílanó á meðan ég bíð eftir gönguhópnum frá Íslandi. Við erum að fara að ganga um í sælkeralandi Toscana, læra að búa til jurtasmyrsl og njóta þess að vera í stelpufríi. Ég ætla að fara með fluglestinni inn í miðborg Mílanó og skoða m.a. dómkirkjuna, Scala óperuna, allar flottu rándýru verslanirnar í gullhverfinu, fá mér aperitivo og snúa mér í hringi á nautshreðjunum....tjah bara svona á meðan ég er að hanga og bíða eftir hópnum, enda ekkert vit í því að hanga í 11 tíma á flugvellinum og bíða. Ég hef farið nokkrum sinnum inn í miðborg Mílanó og er því alls óhrædd með að hanga þar í heilan dag. Það væri þó óneitanlega skemmtilegra að hafa einhvern til að hanga með.
Það sem vefst hinsvegar fyrir mér er sú staðreynd að ég er að pakka fyrir ferðalag sem varir í fjórar vikur. Ég fer til Íslands frá Ítalíu og lendi ekki aftur í Noregi fyrr en nákvæmlega fjórum vikum eftir að ég legg af stað þaðan. Fyrir Ítalíuferðina þarf ég gönguskó og göngufatnað, íþróttafatnað og þunnan fatnað. Fyrir Ísland þarf ég þykkari fatnað, pæjuskó, pæjuföt, föt fyrir eina fermingu og eitt brúðkaup. Hvað má maður aftur ferðast með mörg kíló.......fjúffff?
Búin að sauma sumarhattinn fyrir Toscanaferðina og svo komu
léttu gönguskórnir með pósti í gær frá UK.