Showing posts with label afmæli. Show all posts
Showing posts with label afmæli. Show all posts

Monday, March 26, 2012

dagarnir líða

Heilmikið búið að gerast síðan í Kína - eiginlega svo mikið að ég bara hreinlega man það ekki ehemm! Ég skrapp í húsmæðraorlof (og kynningarstarf vegna bókarinnar) til Stavanger í vikunni. Það var svo gott að knúsa vinkonu mína og svo fékk ég kynningu á borginni - ekta áfangi Stavanger0313 fyrir framhaldsnemendur.... Litla systir átti afmæli um helgina og ég saumaði handa henni afmæliskort og sendi til Barcelona í síðustu viku.

Í pakkanum var líka m.a. sæt chilisulta sem ég afrekaði að búa til í þarsíðustu viku en miðana á sultuglösunum fékk ég einmitt frá sætu systur í afmælisgjöf í fyrra.


Við skelltum okkur í Grünerløkka á laugardaginn af því mig "vantaði nauðsynlega" mottu undir eldhúsborðið og eiginlega hefði hún þurft að koma í vetur þegar ég var að frjósa á tásunum.....í staðinn frýs ég ekki á tásunum næsta vetur. Keypti stóra House Doctor mottu og var ótrúlega heppin að hún var BARA til í bleiku.

Á leiðinni í mottuleiðangurinn varð ég fyrir þessu kertahúsi. Það hreinlega henti sér í andlitið á mér og ég kunni bara ekki við annað en að taka það með heim - var á fáránlegu tilboði sem var "alls ekki" hægt að sleppa. 

Ég réðist svo í framkvæmdir í dag en það hefur legið fyrir í nokkurn tíma að ég ætla að búa til borð úr júrópalla. Fann einn fyrir einhverjum mánuðum síðan hérna fyrir utan og dró draslið heim yfir snjóskaflana en hann er búinn að þorna vel og vandlega síðan þá. Í dag skellti ég svo sandpappír á viðinn og grunnaði með hvítum. Svo er bara að velja lit og henda hjólum undir. Hef ætlað að búa svona til í mörg ár og núna er tækifærið.




Annars hefur aðeins verið bakað hérna og í gær var t.d. stóri vöffludagurinn í Noregi. TAE (nr.30) skellti sér á einn fótboltaleik og liðið hans vann 3-0. Alltaf gaman þegar vel gengur í boltanum.


Ég steikti pönnukökur í tilefni sumartímans og við dekkuðum borð úti á veröndinni okkar. Hlakka til að eyða meiri tíma þar í sumar. Eru þið kannski að spá í að koma í heimsókn?


Rjómaleginn Kófú

Núna er það bara afslöppun næstu kvöld með prjónana en það er víst kominn tími á peysu fyrir mig og ég fitjaði upp á henni í gærkvöld.

Friday, January 27, 2012

járnkonan

Ljósakanínan mín í eldhúsglugganum hefur eignast unga. Ég sé það bara á henni hvað hún er hamingjusöm með ungana sína, verst samt að þeir skipta litum ef það er kveikt á þeim. Líklega tengist það bara stærðinni á þeim - ætli það eigi eftir að eldast af þeim?


Tjéllingin er enn meðetta - jebb slær í gegn hvað eftir annað í árlegu blóðprufunum. Fékk símtal frá lækninum í dag þar sem ég var beðin um að bryðja járn út í eitt. Alvarlegur járn- og blóðskortur í gangi.....mér finnst þetta vera flassbakk.....ég er "alltaf" að lendíssu. Í gær gaf ég mér sem sagt blóðprufu í afmælisgjöf. Gaf mér líka hlaup og göngu á brettinu í BareTrening úti á horni (tók nú Dr. Voltarol með þar sem rófan er ekkert alveg að samþykkja brettið eða hreyfingu almennt ehemm). Fór í langa heita sturtu og lakkaði neglur - jebb best að taka þetta alla leið fyrst maður er að eldast svona á milli ára!

Svo bakaði ég GULA köku af því gular kökur eru GLAÐARI kökur en aðrar kökur. Þeim yngsta á heimilinu fannst að kakan ætti að vera röndótt og afmæliskonan valdi því svartan, gulan og bleikan lit. Notaði í fyrsta skipti sykurmassa og það gekk svona súper vel. En svona sykurmassi er alltof sætur, ef út í það er farið, reikna ekki með mikilli notkun - finnst þetta ekkert alltof gott....fjúff. Einnig var óskað eftir lakkrísbollakökum og því voru bakaðar nokkrar minicupcakes.







Sá yngsti kom svo færandi hendi heim úr skólanum en hann gaf mömmu sinni lakkrís sem er allra besta nammið í öllum heiminum - sama hvernig lakkrís það er. Áður hafði ég fengið flottustu tölvutösku í heimi sem hann saumaði sjálfur í skólanum.



Eiginmaðurinn kom svo færandi hendi með blóm handa frúnni þegar hann kom heim úr vinnunni. Aldrei of oft sem maður fær blóm. Þetta voru margrétarblóm - þið vitið þessi hvítu með gulu miðjunni.....elska þau.

Í vikunni kom svo washi límbandið sem ég pantaði á etsy um daginn. Hef ekki grænan grun hvað ég ætla að nota það í - en krúttlegt er þetta.


Pósturinn kom með tilkynningu um pakka í gær. Ég fór því spennt að ná í pakkann í dag og varð svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum (eins og ég myndi einhverntíma verða það ef ég fengi pakka - uuuh neits). Í pakkanum frá bestu systur í Barcelona var sætasti te-apinn og falleg og litrík gúmmífiðrildi til að setja á glös.


Ég er að segja ykkur, te-ið bragðast MIKLU betur eftir að apinn mætti á svæðið.