Showing posts with label mad. Show all posts
Showing posts with label mad. Show all posts

Friday, June 1, 2012

glúten

Búin að endurheimta eiginmanninn frá Íslandi. Hann skellti sér til Íslands í viku og fór m.a. í flotta vinnuferð til Aðalvíkur. Kom endurnærður heim, alsæll með ferðina. Mamma kom til okkar (mín og strákanna) um helgina og við fengum frábært veður allan tímann sem hún tók svo með sér aftur til Íslands. Verði ykkur að góðu. Við áttum góðan tíma saman um helgina, fórum m.a. í bæinn, á kaffihús, út að borða, sátum í sólinni úti á verönd, fórum í sólbað úti í garði, horfðum á fótboltaleik..... Mamma gaf mér þessa fallegu hálsfesti eftir Hlín Reykdal - þvílík fegurð. Takk takk takk elsku mamma mín.


17 dagar og þá flýg ég ein til Mílanó. Þarf að hanga þar í 10 klukkutíma þangað til restin af gönguhópnum kemur. Jebb. Júní er mættur og ég er að fara í stelpuferðina mína til Toscana. Eins og ég skrifaði í pistli hér í lok síðasta árs þá vissi ég að á þessum tímapunkti myndi ég sjá eftir því að hafa ekki æft fyrir ferðina. Sá tímapunktur er sem sagt kominn. Ég þekki sjálfa mig svooo vel....hehe. Ég er samt tilbúin í hausnum að fara af stað og neibb sé ekki eftir því að hafa ekki æft stíft. Kannski sé ég eftir því á meðan ég er að ganga, en ég er nú ekki að hafa áhyggjur af því núna. Á eftir að redda mér nokkrum hlutum til fararinnar og á pottþétt eftir að sleppa því að kaupa létta gönguskó....af því ég á eftir að gleyma því of lengi og svo bara vúpsí er komið að ferðadegi...hmmmm!

Undanfarnar 3 vikur hef ég verið á glútenlausu fæði. Tilraunaverkefni þar sem ég hef verið að reyna að finna leið til að hætta að vera svona þreytt og illt í öllum liðum og vöðvum. Járnleysið hefur lítið batnað síðan í janúar (þegar ég náði sögulegu lágmarki í járnbúskap) þrátt fyrir að hafa tekið tvöfaldan skammt af járni frá því í janúar. Fyrir viku síðan ákvað ég að minnka járnskammtinn í einfaldan því - jebbs - mér líður miklu betur. Ég er ekki stíf og stirð eftir göngutúrana, get staðið upprétt þegar ég fer á fætur á morgnanna (eða stend upp úr sófanum), get beygt fingur án verkja........ Tilraunin átti að vera til fjögurra vikna og ég er spennt að sjá hvernig heilsan er eftir eina viku (ábyggilega miklu miklu betri). Ég hef jafnvel verið að gæla við að fara út að skokka - en passa mig á að anda djúpt þegar ég fæ þá hugmynd, fá mér kaffisopa og gleyma svo hugmyndinni hahahahaha (vá hvað mér finnst leiðinlegt að hlaupa). En fyrir þá sem eru núna orðnir grænir af öfund af því þeir halda að ég sé orðin 1.74 og 90-60-90 þá geta þeir sömu andað léttar. Eins og áður hefur ekkert gramm ákveðið að yfirgefa minn frábæra líkama þrátt fyrir þessa skemmtilegu tilraun. Hinsvegar er ég pottþétt hrikalega holl að innan - allavega í smáþörmunum - því þeir eru farnir að taka járnið meira inn í systemið en áður - júhú.

En varðandi glútendæmið - það er glúten í öllu, eða þannig. Ekki vissi ég að það væri hægt að kaupa glútenlaust mjöl (hveiti) og glútenlaust pasta.....svei mér þá - það er bara allt til. Þar sem synirnir eru alltaf frekar skeptískir þegar kemur að matar- og kökugerð heimilisins (finnst þetta aðeins of hollt) og kalla allt speltmat (mjög hallærislegt að vera með speltmat - þó það sé ekkert spelti í matnum hehe) - þá eru þeir núna illa haldnir af því að allt verði glútenlaust á heimilinu (án þess að vita almennilega hvað glúten er).... Þessi blessuð börn.

Er annars alltaf að detta á skemmtilegar uppskriftir og í gær bjó ég til bountynammi sem fer beint í flokkinn með hrásnickerskökunni - namminamm. Uppskriftina fékk ég hér og nafna mín hún Elin er svo sannarlega með fullt af góðum og skemmtilega hollum uppskriftum.

Kakósmjör, lukuma, kakó, vanilla.

Kókosmjöl, sukrinmelis og kókosmjólk.




Ég átti afgang af súkkulaðinu og hellti því í konfektform og bætti
einni heslihnetu í hvert hólf.


Sunday, March 11, 2012

Sjanghæ - 4. og síðasti hluti

Næst síðasta daginn okkar í Shanghai fórum við á hótelbar sem var á 32. hæð. Flott útsýni (sérstaklega fyrir þá sem eru ekki lofthræddir). Á leiðinni niður fórum við með lyftu sem var UTAN á húsinu - já sæll - það voru naglaför eftir mig innan á lyftunni....
Við kíktum í skemmtilegt hof sem var inni í miðri borginni. Endalausar mótsagnir í byggingarstíl.










Við fórum líka á safnið Urban Planning en þar gátum við séð skipulagið á borginni, hvað er búið að gera og hvað er á framkvæmdarlistanum. Fleiri hundruð fermetrar af litlum líkönum af húsunum í borginni. Verkfræðingnum fannst þetta nú ekki leiðinlegt og reyndar ekki mér heldur. Þarna var líka skemmtileg vídeóhorn og skipstjórahermir. Skemmtilegt safn sem við mælum hiklaust með.....sko ef þið eigið leið um Shanghai.






Í stórum garði við hliðina á þessu safni er Wedding Market á laugardagsmorgnum. Þar koma foreldrar saman með myndir og upplýsingar af börnunum sínum til að leita að framtíðar mökum. Unga fólkið vinnur svo mikið að það hefur ekki tíma til að fara á stefnumót og finna sér maka. Aldraðir foreldrarnir sjá þá um að reyna að finna makann. Og trúið mér - það var allt TROÐFULLT þarna.



Peking önd varð svo fyrir valinu síðasta daginn. Vel þess virði nammi namm. Við borðuðum nánast eingöngu kínverskan mat á ferðalaginu okkar. Við smökkuðum mat frá ýmsum héröðum í Kína og næsta nágrenni, fengum aldrei í magann og eigum aðeins góðar minningar úr ferðinni. Það var sannarlega gott og gaman að fá að njóta samvista við vinkonu mína og ég vildi svo innilega óska að við byggjum aðeins nær hvor annarri. Það er eiginlega alveg kominn tími á það!

Friday, January 6, 2012

ævintýri á nýju ári

Við vorum fimm á gamlárskvöld. Frúin skreytti borð og eldaður var kalkúnn. Við settum fiðurfénaðinn í saltpækil yfir nótt og heppnaðist hann svona líka rosalega vel. Fyllingin var án uppskriftar (sem við sjáum eftir núna að hafa ekki skrifað niður ahhaha). Sjaldan borðað eins góðan kalkún.





 Fórum út að skjóta í Torshovdalen rétt fyrir miðnætti. Þeir eru nú ekkert alltof færir í skotunum þessir innfæddu - eiginlega bara stórhættulegir. Sá yngsti náði þó að kveikja í einhverjum púðurkerlingum og enginn slasaðist úr okkar hópi.




Eiginmaðurinn dvaldi á Íslandi milli jóla og nýárs. Þegar hann kom heim var hann með Hátíðarblöndu og Malt í ferðatöskunni. Allir hlökkuðu til að fá "alvöru" jólaöl á áramótunum. Á gamlárskvöld var boðið upp á Hátíðarblönduna og féll hún í góðan jarðveg. Þann 1. janúar var boðið upp á malt og appelsínbland. Sniðugt hvernig hægt er að komast að því hvort fólk er með óþol fyrir hinu og þessu. Svona leit drengurinn allavega út eftir maltdrykkjuna - sem var alls ekki í óhófi.

Er annars búin að baka fyrsta kökuskammtinn þetta árið. Bakaði súkkulaðibitakökur upp úr Disneybókinni. Þær féllu vel í kramið með mjólkurglasi og voru ekkert alltof lengi að klárast.


Smá veikindi í gangi á heimilinu, ekkert alvarlegt - enginn hiti, en þar sem unginn var búinn að vera með magakvalir í alltof langan tíma ákváðum við að heimsækja læknavaktina í miðborg Oslóar í fyrrakvöld. Það ætlum við ekki að gera aftur. Ef við vorum ekki veik þegar við komum á staðinn þá erum við orðin veik núna.....sjæse hvað var mikið af fólki....þó áberandi lítið af innfæddum. Mér var farið að líða illa að vera ekki með slæðu á hausnum. Fengum villandi skilaboð við innskráningu og biðum of lengi til að fá svo að vita að við fengjum ekki aðstoð þennan daginn. Þá var klukkan að verða 2 að nóttu. Eiginmaðurinn tók nett flipp - alltaf gaman að því - þar sem hann sýnir þá hlið alltof sjaldan! Fórum á einkarekna læknavakt í gærkvöld þar sem móðirin svaf of lengi í gær og eyddi bara 1 1/2 tíma í að ná í heimilislækni um hádegisbilið - náði þó aldrei að tala við annan en símsvarann. Eftir að hafa setið innan um innfædda, bæði meðlimi og ekki meðlimi á þessari einkareknu læknavakt ákváðum við að líklega væri best að vera bara meðlimir þarna. Toppfólk að vinna þarna og súper góð þjónusta. Jú jú maður borgar víst fyrir það (erum ekki enn búin að fá reikninginn)....en ungi sænski læknirinn sem aðstoðaði okkur svo faglega og var svo flottur við ungann seldi okkur konseptið alla leið. Það mest spennandi við þessar heimsóknir var mannlífið. Svei mér þá ef ég væri ekki til í að vera mannfræðingur og stúdera svona hópa allan daginn...... Kannski er mér bara farið að leiðast einveran hahahhaha.

Unginn, sem er að verða táningur eftir nokkra mánuði, hannaði umslag í morgun utan um i-padinn. Mamman fékk að sauma það en hann valdi efnið úr hillunum í vinnuherberginu og hann straujaði og græjaði. Besta umslag sem hann hefur augum litið - það á enginn svona flott.

Monday, November 21, 2011

Pizza

Helgin var pökkuð. Fengum góðan næturgest frá Berlín. Gerðist Suzukimóðir eina helgi, tók myndir og vídeó eins og góðri móður sæmir. Skrapp með næturgestinum á Frognerseteren í þokunni á laugardagskvöldið. Kíktum á Munch safnið á sunnudagsmorguninn og svo voru það tónleikar í Majorstuenkirke seinnipartinn á sunnudag. Glæsilegir tónleikar þar sem næturgesturinn stóð sig með mikilli prýði og spilaði undurfagurt lag eftir íslenskan höfund.

Á föstudaginn gerði ég mér hollustu pizzu á meðan allir strákarnir fengu sér týpíska heimapizzu. Mig langaði bara ekkert í svoleiðis. Pizzaofninn alveg að standa sig :D.

Sést ekki í botninn fyrir gúmmelaði

Pepperonipizza

Tuesday, September 13, 2011

góð helgi - sushigerð

Á laugardaginn fengum við fjölskylduna í Jaren í heimsókn. Af því tilefni voru bakaðar bollakökur, meira að segja tvær sortir. Þann dag var líka markaðsdagur á Bogstadveien, sem sagt í götunni okkar. Sólin skein úti og gatan var troðfull af fólki allan daginn. Fullt af flottum tilboðum og allir í góðu skapi. Ég gerði reifarakaup rétt fyrir lokun á deginum og keypti þessa fallegu tösku en í henni get ég geymt allar eigur mínar og þínar líka ;)

Þegar ég tók miðann af töskunni tók ég eftir fallegum skilaboðum til mín :)

Um kvöldið fórum við með strætó í hverfið sem við ætlum að búa í því við fengum matarheimboð frá nágrönnunum okkar H og H. Horfðum á teiknimynd og nutum þess að vera í góðum félagsskap. Fengum meira að segja akstur heim í fornbílnum sem er á leiðinni á haugana.

Sunnudagurinn rann upp með rigningu. Ótrúlegt hvað þessi rigning getur verið mikil hérna. Það er bara alltaf rigning! Prófaði svo það sem mig hefur lengi langað til að gera en aldrei lagt í fyrr en nú. Verð nú að segja að það er stórlega ýkt að halda því fram að sushigerð sé erfið og taki tíma. Ef hrísgrjónin eru í lagi - þá er þetta ekkert mál :).

Útlitið kannski ekki það flottasta - en bragðið var æði :)

Í gær átti T valgdagsfrí og því skelltum við okkur í langferð með T-bana og strætó. Fórum í hina mjög svo þörfu búð Stoff og stil og kíktum svo á McD sem tilheyrir svona frídögum. Enduðum á klukkutíma heimsókn í Toys'r us.
Þurfti aaaðeins að versla í vefnaðarvöruversluninni og keypti m.a. mjúkt zebraefni fyrir L vinkonu mína en hún ætlar að setja það utan um stóla sem eiga að prýða nýju íbúðina hennar :)

Thursday, August 18, 2011

Ljúft sumarfrí

Það er nú ekki leiðinlegt að vera enn í sumarfríi. Við þvælumst um hverfin hérna með trikkum, strætóum og T-bönum og allir eiga sinn uppáhalds ferðamáta. Ég vil helst fara með trikknum því hann stoppar beint fyrir framan húsið ;). G vill helst fara með T-bananum því þar er ekki svo þröngt og T vill helst fara með strætó því þar er skilti sem maður getur séð næstu "margar" stopp-stöðvar. Við höfum lent á skemmtilegum mörkuðum og í einni kaffihúsaheimsókninni fann ég þennan fína bækling og kippti honum með af því hann er BLEIKUR :). Er reyndar búin að lesa í honum líka og finna a.m.k. 4 fjölskylduatburði sem væri gaman að mæta á.


Við ákváðum að baka fljóta súkkulaðiköku í bolla og nota til þess örbylgjuofninn. Ég skipti uppskriftinni að einni köku í tvo bolla (af því þetta voru ekki stórir bollar) setti bollann í örbylgjuofninn og stillti á 3mín eins og getið var í uppskriftinni. Við megum þakka fyrir að slökkvilið Oslóborgar hafi ekki mætt á svæðið með reykkafara og læti.......kakan brann og brunalyktin var í íbúðinni í maaaarga klukkutíma ehemmm. En næstu þrjár kökur tókust þó vel enda bara settar í ofninn í tæpar tvær mínútur,  tvær uppskriftir = 4 kökur :)
Deigið komið í bollann

Komin úr örbylgjuofninum

Flottar bollakökur

Þessi ungi herra var svo ekki óánægður þegar pakkinn kom frá Íslandi sem hann hafði pantað. Svo nú er það bara kósýgallinn öll kvöld.

Þar sem allar uppskriftabækur og blöð eru föst í gámi heima á Íslandi hefur það verið skemmtileg nýbreytni að elda hérna í höfuðstöðvunum. Í gær gúgglaði ég kjúklingur og spínat og fékk þennan líka gómsæta rétt upp á skjáinn sem ég hef aldrei prófað áður. Þessi verður ábyggilega á disknum mínum aftur á næstu vikum :)
Ok búið að borða smá af réttinum enda var hann rosalega góður

Óh svo rataði þessi litli snáði í poka hjá mér í Kremmerhuset

og í þeirri verslun var einmitt að finna þessi fínu orð