Tuesday, March 6, 2012

Sjanghæ - 3.hluti

Á hverjum degi sáum við helling af fólki. Það búa 23 milljónir manna í Sjanghæ. Það er nú alveg ágætis fjöldi - svona í óspurðum! Eins mikið og mig langaði að taka myndir af gaurum sem voru á hjóli með lifandi endur í körfunni framan á hjólinu (kvöldmaturinn), 100 tóma vatnsdunka reirða saman aftan á hjólinu, þannig að hvorki sást í hjól né ökumann - eða gaurnum sem hjólaði með 20 pappakassa fulla af drasli, alla reirða saman aftan á hjólinu hans og einn lítill kínverji sat með krosslagðar fætur OFAN á kössunum á meðan gaurinn hjólaði.........þá varð ekkert af þeim myndatökum. Ástæðan einfaldlega sú að ég var í aftursætinu á bíl, með lífið í lúkunum og missti af öllum tækifærunum (jebb umferðarljós og gangbrautir eru bara til leiðbeiningar í Sjanghæ - óþarfi að fara eftir reglum og lögum). En minningin lifir í hausnum.
Við fórum á fullt af "svartamörkuðum" eins og grunnskólanemandinn á heimilinu myndi orða það. Fleiri þúsund fermetrar af feik dóti út í eitt - þeim er í alvörunni ekkert heilagt þegar kemur að framleiðslu á fatnaði, fylgihlutum og drasli almennt. Ég tók heldur ekki myndir á þessum efnamörkuðum og dótamörkuðum. Ég einfaldlega fattaði það ekki.
En við fórum á skemmtilegan "antik"útimarkað og versluðum styttur, tafl og lítinn rauðan búdda.





Einn daginn keyrðum við út fyrir borgina í u.þ.b. klukkutíma og komum þá í aðra borg, öllu minni og lágreistari en Sjanghæ. Í gegnum borgina var eins konar síki þar sem við sáum skolpið leka í vatnið, fólk þrífa grænmeti upp úr sama vatni, vaska upp og henda matarafgöngum í sama vatn. Sá engan þvo þvott í vatninu - en hver veit?












Annan dag fórum við upp í hæstu byggingu í Sjanghæ sem er í laginu eins og upptakari - Shanghai World Financial Center. Við borðuðum hádegismat á 92.hæð. Já takk fyrir nítugustu og annarri hæð. Fyrir utan það að fá illt í eyrun þegar lyftan fór upp þá fannst mér húsið vagga þegar ég steig út úr lyftunni. Eigum við að ræða lofthræðsluna - nei ég hélt ekki!




framhald.....

Monday, March 5, 2012

Sjanghæ - 2.hluti

Á meðan við vorum í Sjanghæ var frekar kalt og oft rigning. Ég hefði viljað hafa húfuna mína með og þakka fyrir að hafa tekið þykka trefilinn og vettlingana með. Á mánudeginum fórum við í Yu Garden til þess eins að drekka te. DM gaf okkur teketil og te sem við hlökkum til að prófa hérna heima. Ég keypti líka ponsu litla bolla til að drekka teið úr.







Eftir tedrykkjuna fórum við inn á minjasafn í Yu Garden. Bara miðarnir inn á staðinn eru gullslegnir með dreka framan á - enda ár drekans. Mér fannst "hellulögnin" þeirra langmerkilegust. Litlar flísar hamraðar niður í jarðveginn og búin til allskonar mynstur. Hefði gjarnan viljað vera þarna að vori til eða í byrjun sumars þegar bonsaítrén eru í blóma - kannski á ég það bara eftir.

















framhald......

Friday, March 2, 2012

Sjanghæ - 1.hluti

Ferðalagið hófst á föstudagsmorgni. Við keyrðum loðdýrið í pössun í Hosle og keyrðum svo út á Gardermoen. Vorum búin að ákveða að leggja bílnum á flugvellinum á meðan við værum í útlöndum þar sem það var ódýrara að leggja bílnum þarna þessa daga heldur en að borga í fluglestina fyrir okkur bæði fram og til baka.
Flugum í fyrsta skipti með Finnair og fannst geggjað hvað það var mikið pláss fyrir fæturna í flugvélinni, þó það væri seinkun og við látin bíða úti í flugvél ásamt Japönunum, Kínverjunum og samlokuétandi Norðmönnunum með skíðahúfurnar og bakpokana. Flugið til Helsinki tók tæpan einn og hálfan tíma.




Við tók tveggja tíma bið og þá var það næsta vél öllu stærri en sú fyrri. Í Finnlandi var mikill snjór og ís og frú flughræddri var nú ekkert alveg sama um þessa ísingu á vélinni og afísingu og allt það.

Hrikalega fyndið fannst okkur þó (og ögn pirrandi) að fyrir 9,5 tíma flug skyldi ekki vera meira pláss fyrir fæturna en þetta.

Flugið gekk stóráfallalaust fyrir sig. Reyndar sat kínversk beygla fyrir aftan mig (nei þetta er ekki kynþáttafordómar því hún var algjör beygla og skiptir engu máli hvaðan hún kemur - nema í þessu tilviki kom hún frá Kína). Hún hristi sætið mitt alla leiðina. Braut HÁTT saman RISA morgunblað þegar búið var að slökkva og allir reyndu að hvíla sig. Hristi aðeins meira og þegar hún loks sofnaði með hnén í bakinu á mér hraut hún hærra en andskotinn.....öööh já það vottaði fyrir pirringi.

Á flugvellinum tók DM á móti okkur, það var kominn laugardagsmorgunn. Mikið ROSALEGA var það frábært að sjá hana og knúsa í landinu hennar. Mér finnst enn ótrúlegt að við höfum látið verða af því að fara í heimsókn alla leið til KÍNA.... Við tók sannkölluð ævintýraferð fyrir okkur hjónin. Við skelltum okkur strax í skoðunarferð, hádegismat og enduðum í höfuð/herða og fótanuddi í klukkutíma.....YNDISLEGT.

Á sunnudeginum fórum við í brunch í skemmtilegum bæjarhluta í Sjanghæ.

T og M Chan - duglegir að borða :)








framhald.....

Thursday, February 16, 2012

ferðalag

Það er aldeilis - ýmist í ökla eða eyra - annað hvort ekkert að gera eða allt að gerast....
Á morgun verður lagt af stað til Sjanghæ í Kína. Jebb - bara ár síðan þetta var ákveðið og núna er loksins komið að því. Hef ekki grænan grun hvað ég ætla af mér að gera þarna annað en að heimsækja vinkonu sem hefur reyndar verð vinkona mín í 32 ár. Af þessum 32 árum höfum við verið í sama bekk í 6 ár, sama framhaldsskóla í 4 ár, verið saman í saumaklúbb í 22 ár. Af þessum 32 árum höfum við búið í sama landi í 12 ár - í heil TUTTUGU ár erum við búnar að búa í sitthvoru landinu. Samt erum við enn vinkonur. Við töluðum stundum ekki saman í heilt ár - en alltaf þegar við heyrðum í hvor annarri var eins og við hefðum hist síðast í gær. Á laugardagsmorgunn (Kínatími) hittumst við og ætlum að eyða rúmri viku saman. Jebb ég er tilbúin að fara. Á bara aðeins eftir að finna töskuna, pakka og kannski fyrst og fremst endurheimta eiginmanninn frá Íslandi. Þetta græjast allt fyrir brottför á morgun - ég veit það - hefur ekki klikkað hingað til!


Metum vináttuna - verum glöð - lifum lífinu - samgleðjumst samferðafólki okkar og heilsum fólki sem eru vinir okkar á Facebook, af hverju ættu þeir annars að vera vinir okkar ;)